Privacy policy

Vöruskil og endurgreiðslur

Viðskiptavinur hefur 14 daga frá því að vara er móttekin til að tilkynna um að hann vilji falla frá kaupum og skila vörunni.

Vara sem skilað er þarf að vera ónotuð, í góðu ástandi og eftir því sem við á í upprunalegum umbúðum. Kaupandi skal geta sýnt fram á kaupin.

Til að óska eftir vöruskilum skal hafa samband við Brúðubílinn ehf. á netfangið brudubillinn@gmail.com áður en vara er send til baka.

Kostnaður við að skila vöru er almennt á ábyrgð kaupanda, nema varan sé gölluð, röng vara hafi verið afhent eða mistök hafi orðið af hálfu Brúðubílsins.

Gallaðar eða rangar vörur

Ef vara berst skemmd, gölluð eða röng skal hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er á brudubillinn@gmail.com. Við munum þá finna viðeigandi lausn, svo sem að senda nýja vöru eða endurgreiða kaupin eftir því sem við á.

Endurgreiðslur

Þegar skilavara hefur borist og verið yfirfarin verður endurgreiðsla afgreidd eins fljótt og auðið er. Endurgreiðsla fer að jafnaði fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin.