Sýningarnar okkar

Brúðubíllinn býður upp á litríkar og fjörugar brúðuleikhús sýningar fyrir börn og fjölskyldur um allt land.

Sýningarnar henta meðal annars leikskólum, bæjarhátíðum, fjölskylduhátíðum, fyrirtækjum og öðrum viðburðum og hægt er að sýna bæði innan- og utandyra.

Veldu sýningu hér fyrir neðan og kynntu þér ævintýrin sem Brúðubíllinn hefur upp á að bjóða!

Afmælisveislan

⏱️ Lengd: 32 mínútur

Lilli api og Dúskur leggja af stað í skemmtilega ferð á leið í afmælisveislu þar sem þau hitta margar litrík­ar persónur, þar á meðal Agnarögn og Dindil sem baka ljúffenga drulluköku fyrir afmælisbarnið.

Á leiðinni lenda þau í ýmsum ævintýrum. Dúskur verður strætóbílstjóri og sýnir töfrabrögð, kisan reynir að stela afmælisgjöfinni og hundarnir Seppi og Snati þurfa að fá hjálp þegar þeir lenda í prakkaranum Rebba.

Sýningin er stútfull af töfrum, glimmeri, húmor og fjörugum söng. Börnin fá að syngja með vinsælum lögum á borð við Hjólin á strætó, Í leikskóla er gaman, Drullumallakökulagið og Afmælislagið. Jafnvel sokkapar, þvottapoki og sápa bresta í söng!

Afmælisveislan hentar öllum aldurshópum og hægt er að sýna bæði innandyra og utandyra um allt land.

🔵 Bóka þessa sýningu

 

Ys og Þys í Brúðubílnum

⏱️ Lengd: 30 mínútur

Ys og Þys í Brúðubílnum er litrík og fjörug brúðuleiksýning sem sameinar það besta sem Brúðubíllinn hefur upp á að bjóða.

Lilli api er á leit að týndu rólunni sinni og á ferðalaginu hittir hann margar skrautlegar og skemmtilegar persónur. Þar á meðal er Haninn sem segir söguna af varðhundinum Seppa sem kunni ekki að gelta, ásamt Svarta sval, Tófunni og Bóndanum.

Ferðin heldur áfram niður að sjó þar sem Lilli og músin Blúnda hitta syngjandi fiska, dansandi kolkrabba og Robba rostung sem kennir börnunum að synda. Tærnar láta einnig sjá sig og kenna öllum hið skemmtilega Tásulagið, á meðan Dúskur trúður heillar áhorfendur með töfrabrögðum og heljarstökki.

Í sýningunni koma fram átta stórar brúður ásamt fjölda skemmtilegra laga sem hafa glatt kynslóðir barna í Brúðubílnum í gegnum árin.

Ys og Þys í Brúðubílnum hentar öllum aldurshópum og hægt er að sýna bæði innandyra og utandyra um allt land.

🟢 Bóka þessa sýningu

Brúðubíllinn ferðast um allt land og við komum með leikhúsið til ykkar!